Valmynd

05/01/2012

Samfélagsstyrkir.

Í tilefni 10 ára afmælis Orkubús Vestfjarða ohf þann 1. júlí s.l. ákvað stjórn OV að veita 1.750.000.- króna styrk til hérðassambandanna á Vestfjörðum og Ungmennafélagsins Aftureldingar á Reykhólum. Styrknum skyldi varið til eflingar á barna og unglingastarfi félaganna og var sérstaklega horft til Unglingalandsmóts UMFÍ 2011....
Meira
04/01/2012

Breytingar á verđskrám OV um áramót 2011/2012.

Verðskrá Orkubús Vestfjarða fyrir raforkudreifingu var hækkuð um 6% nú um áramótin, tengigjöld rafmagns voru einnig hækkuð um 6%. Hækkunin er tilkomin vegna almennra verðlagshækkana.

...
Meira
17/11/2011

Framleiđsla hafin á ný í Mjólká

Nýja vélin fyrir innan stóra gluggann
Nýja vélin fyrir innan stóra gluggann
« 1 af 2 »
Eftir hádegi í dag var vél II ræst á nýjan leik og framleiðsla er hafin.  Búið að setja vélina á flutt afl þegar þetta er skrifað og er verið að skoða frávik í mælingum og ekki komin niðurstaða í hvað olli þessari bilun.  Forsagan er sú að vélin var stöðvuð vegna vinnu innandyra í stöðvarhúsinu mánudaginn 7 nóv.  Undan því vorum við búnir að sjá olíuleka úr neðri legu vélarinnar og var framleiðanda strax gert viðvart.  Ábyrgð þeirra er 30 mánuði eftir gangsetningu og allar viðgerðir innan þess tíma eru gerðar í samráði þá.  Varnarbúnaður vélarinnar er mjög góður og fyrir utan hitaskynjara í legum, þá er einnig titringsmæling og hvorugt skráði óeðlileg frávik á meðan vélin var í rekstri.

 

Til stóð að ræsa vélina kl. 19.00, 13 nóv og þegar á reyndi þá stöðvaðist vélin í miðju ræsingarferlinu.  Vélin var föst, eða hún snerist ekki með því vatni sem áður dugði til að koma henni uppá snúning.  Í samráði við vélaframleiðanda er búið að tjakka vélina lausa og eins og áður sagi er var vélin sett í gang.  Sérfræðingar frá framleiðanda er væntanlegur næstu daga til að finna orsök fyrir þessari bilun, bæði hvað olli festunni og lekan á legunni.

Orkusvið
Sölvi R Sólbergsson 

15/11/2011

Styrkur til Guđmundar Felix Grétarssonar

Guðmundur Felix Grétarsson rafveituvirki hjá Orkuveitu Reykjavíkur missti báðar hendur í vinnuslysi fyrir nokkrum árum. Nú hefur Guðmundur fengið jákvætt svar um að hægt sé að græða á hann hendur í Frakklandi. Hefur Guðmundur ákveðið að fara í aðgerð til að fá hendur. Þetta kostar Guðmund 40.milljónir. Söfnun er í gangi og hefur gengið vel. Allar upplýsingar eru á vef hendur.is.
Starfsmannafélag Orkubús Vestfjarða safnaði fé meðal starfsmanna til styrktar Guðmundi og Orkubú Vestfjarða lagði síðan fram ámóta upphæð og safnaðist meðal starfsmanna. Alls söfnuðust 250.000.- kr. og hefur sú upphæð nú verið lögð inn á söfnunarreikning Guðmundar.


Starfsmannafélag Orkubús Vestfjarða

01/10/2011

Ný vél afhent í Mjólká

Afhending á vélinni
Afhending á vélinni
« 1 af 2 »
 

Í dag 1.október er búið að ljúka öllum nauðsynlegum prófunum og uppsetningu á skjákerfi  nýju vélarinnar í Mjólká.  Starfsmaður Andritz,  sem er seljandi vélarinnar, afhenti Orkubúinu vélina formlega til rekstrar í gær 30. September.   Á m.f. mynd tekur Sölvi R Sólbergsson við lyklunum af stýrikerfinu frá Christoph Depprich, sem ekki einungis hefur unnið að gangsetningunni, heldur er einnig er hönnuður að ýmsu er tengist stýringum og skjákerfi.

Þótt hann haldi heim á leið í dag, þá mun hann þjónusta okkur áfram með hugsanlegar breytingar og lagfæringar á hugbúnaði eða betrum bætum á  skjámyndum.  Slík vinna er möguleg  erlendis frá gegnum  netsamband.  Engar óvæntar uppákomur komu upp við gangsetninguna og skilaði vélin öllu eins og samningar hljóða uppá.  Bæði afl og svörunartíma við ýmsum álagsbreytingum.  Gæðin allmennt séð eru því mun meiri en gamla vélin gat framkvæmt og það ætti að gagnast okkur þegar eitthvað bjátar á í flutningskerfinu, eins og  þegar virkjunin er í samkeyrslu með díselvélum. 

Til fróðleiks má nefna að gamla vélin sem var 5,7 MW notaði 1,7 m3/s af vatni við það álag og nýja vélin var stillt til gamans á sama afl.  Þá var rennslið 14% minna eða 1,46 m3/s sem sýnir vel hvað nýtin er betri.  Raunafl nýju vélarinnar er takmarkað við ákveðið gildi og leyfir ekki hærri afl en 6,990 MW og er vatnsnotkunin þá 1,82 m3/s.   Ef framleiðandinn leifði, þá væri hægt að pota raunaflinu vel yfir 7 MW, því rafalinn er  með góðri yfirstærð og er 8.455 kVA. 

Gallinn við það er að þá minnkar getan til launaflframleiðslu og þá er ekki átt við í hefðbundinni framleiðslu  í samkeyrslu með landskerfinu, heldur í því augnabliki sem aðalflutningslína til Vestfjarða slær út.  Þá skiptir máli rýmdin í rafalanum til að skipta yfir í undirsegulmögnun sem er nauðsynlegt rétt á meðan jafnvægi er að nást eftir útslátt.  Þá er reynt að halda eins mörgum notendum með rafmagn  og kostur er.  Við fullt álag, þá getur vélin undirsegulmagnað 2,5 MVAr  sem  full þörf er á í útslætti á línunni.  

Nú á eftir að koma í ljós hversu vel þessi nýja vél stendur sig í truflunum á raforkukerfinu.  Allavega var það ekki síður markmið Orkubúsins að með endurnýjun á þessari vél  að betri árangur næðist en áður í stjórnun á þessu einangraða kerfi sem eftir er við útslátt og virkjuninni ætlað að halda uppi.  Vonandi nýtist þessi aukakostnaður á betri búnaði sem Orkubúið ákvað að fjárfesta í, umfram kröfur Landsnets, notendum í bættu afhendingaröryggi.

Orkusvið
Sölvi R Sólbergsson

Síđa 1 af 10
Vefumsjón