Litamerkingar lágspennustrengja
PDF skjal - 929 KB
Almennar reglur um Spennistöðvar í þéttbýli
Í aðalatriðum er um þrenns konar spennistöðvabyggingar að ræða.
1. Hverfisspennistöð í eigin húsnæði Orkubúsins.
2. Hverfisspennistöð í húsnæði notanda, venjulega stærsta notanda í hverfinu.
3. Spennistöð ætluð einum notanda og staðsett í húsnæði hanns.
Í öllum þrem tilvikum þarf húsnæðið og allur frágangur búnaðar að uppfylla reglugerð um raforkuvirki og reglur um eldvarnir.
Í tilvikum 1 og 2 er krafa frá Orkubúinu um óhindrað aðgengi til spennistöðvarinnar utan frá, til allra aðgerða sem kunna að vera nauðsynlegar vegna rekstrar, þar með taldar strenglagnir.
Í tilvikum 2 og 3 ber sérstaklega að hafa í huga eldtrausta þéttingu á raflögnum (t.d. stofnlögn) til annarra hluta hússins. Loftræstingarbúnaður uppfylli kælingarþörf fyrir spenni (loftræstikerfið má ekki vera samtengt öðrum loftræstikerfum) og sé hann útfærður samkvæmt kröfum eldvarnareftirlits og Brunamálastofnunar. Á spennistöðinni skal vera eldvarnarhurð. Í spennisöðinni má enginn búnaður vera annar en sá sem nauðsynlegur er vegna reksturs spennistöðvarinnar og er í umsjón Orkubúsins.
Engar lagnir sem tilheyra húsinu, þ.e. vatn, skolp, sími, eða neitt annað má liggja í gegn um spennistöðvarrýmið.
Engum öðrum en starfsmönnum Orkubúsins eru fengnir í hendur lyklar að spennistöðvum enda eiga þeir einir þangað erindi.


