Útboð - Háspennustrengir Eyrarhlíð og Bolungarvík
Útboð BV2-02
Háspennustrengir við Hnífsdalsveg
Jarðvinna og lagning
Landsnet óskar eftir tilboðum í jarðvinnu og lagningu tveggja háspennustrengja milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur, ásamt gerð göngustígs ofan Hnífsdalsvegar í samræmi við útboðsgögn BV2-02.
Verkið felur í sér lagningu tveggja háspennustrengja 66 kV og 11 kV frá tengivirki við Stóruurð á Ísafirði að gangamunna Bolungarvíkurganga í Hnífsdal og frá gangamunna í Bolungarvík að tengivirki við Múrhúsaland í Bolungarvík, alls um 6,5 km. Verkið felur einnig í sér gerð göngustígs meðfram Hnífsdalsvegi, um 3 km leið.
Helstu verkliðir eru:
- Skurðgröftur, lagning háspennustrengja, söndun, lagning aðvörunarborða, fylling, jöfnun og frágangur yfirborðs, 6,5 km.
- Aðstöðusköpun í 5 tengiholum.
- Gerð göngustígs, 3 km.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsnets, Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík frá og með þriðjudeginum 4. maí 2010.
Tilboðum skal skila til skrifstofu Landsnets, Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík fyrir kl. 13:00 miðvikudaginn 19. maí 2010. Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 14:00 að Gylfaflöt 9, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.


