Útleysing og skemmdir á Bolungarvíkurlínu 1
Útleysing varð á Bolungarvíkurlínu 1 rétt eftir miðnætti aðfararnótt 31. október.
Bolungarvíkurlína 1 liggur frá Breiðadal í Önundarfirði til Bolungarvíkur. Vegna veðurs var ekki hægt að ljúka við skoðun línunnar fyrr en 4. nóvember og kom þá í ljós að töluverðar skemmdir höfðu orðið á línunni á svokallaðri Hestakleif.
Hestakleif, í um 700m hæð, liggur vestan við Kistufell þar sem línan fer upp af Botnsheiði yfir í Syðridal í Bolungarvík og er án efa eitt erfiðasta línustæði landsins. Þarna geta skapast mjög erfiðar aðstæður, mikil vindhæð, sviptivindar og ísing. Ísing á leiðara í þessari bilun mældist mest um 50 cm að þvermáli. Þrír staurar og þrjár slár eru brotnar, einangrarar brotnir auk skemmda á leiðara.
Áætlað er að hefja viðgerð um leið og lokið er við að ryðja snjó af vegslóða og opna sneiðing upp fjallið.


