Valmynd

24/05/2011

Útleysing á Hrafnseyrarlínu

Rafmagn fór af á Þingeyri og á Hrafnseyri og nágrenni þegar Hrafnseyrarlína leysti út kl. 15:35. Rafmagn komst aftur á kl. 15:45. Verið er að kanna orsök útleysingarinnar.
11/04/2011

Útleysing á Mjólkárlínu Landsnets

Mjólkárlína Landsnets var spennusett kl:09:16 í Geiradal og kl:09:42 var sett saman í Mjólká kL:09:53 leysir síðan Mjólkárlína út í báða enda. Uppbygging kerfisins stendur nú yfir.
11/04/2011

Útsláttur á Súðavíkurlínu 1

Kl. 01:17 leysti Súðavíkurlína 1 út, innsetning var reynd en tókst ekki. Varaafl er keyrt í Súðavík.
10/04/2011

Útleysing Vesturlínu Landsnets

Kl. 19:23 leysti Vesturlína Landsnets út í Glerárskógum, innsetning tókst en línan leysti út aftur, innsetning tókst að nýju en búast má við truflunum á sunnanverðum vestfjörðum Reykhólum og Ströndum fram eftir kvöldi.

Kl. 21:39 Varð útleysing á Vesturlínu Landsnet í Glerárskógum. Línan var sett inn aftur kl. 21:46 og komst rafmagn á Reykhólasveit og strandir, en Mjólkárlína frá Geiradal heldur ekki inni, líklega er bilun á henni.
18/03/2011

Útsláttur á Barðastrandarlínu

Þann 18.3.2011 kl. 01:16 sló út aflrofi fyrir Barðastrandarlínu í aðveitustöðinni að Drengjaholti á Patreksfirði.
Reynd var ein áhleyping á línuna en við það sló út annar aflrofi þannig að rafmagn fór af Patreksfirði í nokkrar mínútur.
Við frekari bilanaleit leysti aftur út aflrofi svo rafmagn fór af Patreksfirði í um mínútu kl. 05:35.
Bilun fannst á línunni kl. 06:35 og var línan slitin.
Línan var komin í rekstur kl. 09:18.

Vefumsjón