Valmynd

14/03/2011

Útleysing á Vesturlínu.

Kl. 18:51 leysti Vesturlína Landsnets út. Straumleysi er hjá notendum á Vestfjörðum en uppkeyrsla díselvéla er hafin. Ekki er vitað hvað olli útleysingu en vont veður er á svæðinu.
Kl. 19:35 lauk straumleysi á Vestfjörðum.
15.3.2011  Í ljós kom að orsök bilunar á Vesturlínu var að stæða nr. 5 í línunni féll. Stæðan er á bökkum Hrútafjarðarár skammt frá tengivirkinu í Hrútártungu.  Stæðan féll vegna landbrots af völdum vatnavaxta í ánni.
Viðgerð stendur yfir og mun ljúka síðar í dag.
Myndin var tekin í gær skömmu áður en stæðan féll.
kl. 15:45 Línan tekin aftur í rekstur.
08/02/2011

Rafmagnstruflun í Súgandafirði og Tungudal

Rafmagn fór aftur af í Súgandafirði, Skíðasvæðinu í Tungudal og í jarðgöngunum undir Breiðadals- og Botnsheiði kl. 13:20. Rafmagn var aftur komið á kl. 13:22. Búið er að finna bilun og hefur hún verið einangruð frá dreifierfinu til að koma í veg fyrir frekari truflanir þar til gert hefur verið við.
08/02/2011

Rafmagnstruflun í Súgandafirði og Tungudal

Rafmagn fór af kl. 10:00 í Súgandafirði, Skíðasvæðinu í Tungudal og í jarðgöngunum undir Breiðadals- og Botnsheiði. Rafmagn var komið á aftur kl. 10:06. Verið er að kanna orsök útleysingarinnar.
29/01/2011

Tálknafjarðarlína sló út.

Tálknafjarðarlína sló út kl. 10:25 í morgun, laugardaginn 29.jan.  Línan hélst ekki inni við aðra innsetningi og er því keyrt varaafl á sunnanverðum vestfjörðum.  Leit er hafin að orsökum útsláttar.
14/10/2010

Straumleysi í Hnífsdal

Kl.  10:14 varð útsláttur á 11kV aflrofa í deilistöð Mánagötu, Ísafirði sem olli straumleysi í Hnífsdal.  Rofinn var settur inn kl. 10:16, ástæða útsláttar er ókunn.
Vefumsjón