Valmynd

06/10/2010

Straumleysi 6. október.

Við úttekt á háspennulínu sem liggur milli Bolungarvíkur og Breiðadals í Önundarfirði, vegna vinnu í tengivirki í Bolungavík voru gerð mistök í stjórnstöð Landsnets í Reykjavík, sem orsökuðu stutt straumleysi á Ísafirði og Hnífsdal, Súgandafirði, Önundafirði og Álftafirði. Straumleysi varði frá 13:20 til 13:22 og til 13:24 í Álftafirði. Í Bolungarvík var keyrt varaafli vegna viðhaldsvinnu í virki og varð því ekki straumleysi þar.
09/09/2010

Truflun į raforkukerfinu.

Kl. 11:15  varð truflun á raforkukerfinu sem olli straumleysi hjá stóriðjunotendum og nokkurri spennuhækkun á veitusvæði Orkubús Vestfjarða.

Í tilkynningu frá Landsneti segir:

Orsök truflunar er á þessu stigi rakin til bilunar í rafbúnaði hjá Norðuráli á Grundartanga. Ekki varð um rof á afhendingu frá flutningskerfinu til almenningsveitna en talsverður óróleiki varð á spennu á Norður- og Austurlandi, þar sem miklar álagsbreytingar urðu við útleysingu stóriðju. Verið er að koma rekstri aftur í eðlilegt horf.

30/07/2010

Hólmavķkurlķna 2 spennusett eftir višgerš.

Skeiši Hólmavķk
Skeiši Hólmavķk

Kl. 21:30 var lokið við að gera við bilun á Hólmavíkurlínu 2 og slökkt á varaafli.  Bilun fannst í strenghluta línunnar við aðveitustöð Skeiði Hólmavík. 

30/07/2010

Śtslįttur į 33kV Hólmavķkurlķnu 2.

Geiradalur
Geiradalur
Kl. 10:12 varð útsláttur á 33kV Hólmavíkurlínu 2 sem liggur frá Geiradal að Hólmavík.  Verið er að leita að bilun og setja inn varaafl.
24/06/2010

Bilun ķ jaršstreng 24.jśnķ 2010.


Í morgun kl. 09:21 sló út háspennurofi í spennustöð OV í Mánagötu á Ísafirði, þannig að straumlaust varð í Hnífsdal.

Í ljós kom að jarðýta á vegum verktaka sem vinnur við gerð göngustígs og lagningu nýrra háspennustrengja hafði farið í háspennustreng sem liggur frá spennistöð við Leiti í Hnífsdal að spennistöð við hraðfrystihúsið í Hnífsdal.

Spenna var sett aftur á Hnífsdal kl. 10:01 og viðgerð hófst strax á bilaða strengnum. 
Viðgerð gekk vel og var spenna sett á strenginn sem bilað hafði kl 14:00. 
Vefumsjón