Valmynd

24/06/2010

Bilun í jarðstreng 24.júní 2010.


Í morgun kl. 09:21 sló út háspennurofi í spennustöð OV í Mánagötu á Ísafirði, þannig að straumlaust varð í Hnífsdal.

Í ljós kom að jarðýta á vegum verktaka sem vinnur við gerð göngustígs og lagningu nýrra háspennustrengja hafði farið í háspennustreng sem liggur frá spennistöð við Leiti í Hnífsdal að spennistöð við hraðfrystihúsið í Hnífsdal.

Spenna var sett aftur á Hnífsdal kl. 10:01 og viðgerð hófst strax á bilaða strengnum. 
Viðgerð gekk vel og var spenna sett á strenginn sem bilað hafði kl 14:00. 
21/05/2010

Opnun tilboða BV2-02, Háspennustrengir við Hnífsdalsveg, jarðvinna og lagnir


Miðvikudaginn 19. maí kl 14:00 voru opnuð tilboð í lagningu háspennustrengja við Hnífsdalsveg og í Bolungarvík, jarðvinnu og lagnir.

Fimm tilboð bárust og eru sem hér segir:

Bjóðandi                               Upphæð ISK

RBG Vélaleiga verktakar         73.810.907,-
KNH ehf.                                     67.434.633,-
Steypustöð Skagafjarðar         63.218.871,-
Þotan ehf.                                 109.285.651,-
Vinnuvélar Einars ehf.              56.819.435,-

Kostnaðráætlun                     123.953.966,-
04/05/2010

Útboð - Háspennustrengir Eyrarhlíð og Bolungarvík

Landsnet, Orkubú Vestfjarða, Vegagerðin og Ísafjarðarbær bjóða út jarðvinnu vegna jarðstrengslagna milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur, ásamt gerð göngustígs á hluta leiðarinnar.  Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsnets, sjá nánar í auglýsingu....
Meira
19/04/2010

Háspennurofi sló út

Rafmagnslaust varð í miðbæ Ísafjarðar og hluta hafnarsvæðis þegar háspennurofi sló út í spennustöð Mánagötu kl. 15:47 í dag.  Ekki er vitað um orsök þessa útsláttar en rofinn var settur inn aftur kl. 16:02, eftir að álagi hafði verið létt af dreifikerfinu.

19/02/2010

Útleysing á Bolungarvíkurlínu 1

KL.19:57 leysti Bolungarvíkurlína 1 út í aðveitustöð Breiðadal og Bolungarvík.  Línan var sett inn kl. 20:05. Útleysing olli ekki straumleysi.
Vefumsjón