Rafmagnstruflanir į Vestfjöršum
Rafmagn fór af norðanverðum vestfjörðum í gærkveldi þegar Mjólkárlína Landsnets sló út kl 21:27.
Rafmagnslaust varð vegna þessa í Önundarfirði, Súgandafirði, Ísafirði, Bolungarvík og Álftarfirði. Rafmagnslaust var í um 7 mínútur.
Einnig hafa verið rafmagnstruflanir á Ströndum. Miklar truflanir byrjuðu á Drangsneslínu um kl. 20:00. Ísing var og mikil hreyfing á línunni. Árneshreppur var án rafmagns í um klukkustund og varaafl keyrt á Drangsnesi um tíma.
Einnig voru truflanir á Þorpalína í Steingrímsfirði, sem sló út kl. 22:35 og fannst bilun við Þorpa, Steingrímsfirði.
Þá voru truflanir á Króksfjarðarneslínu og er línan slitin á fimm stöðum í Gilsfirði og er rafmagnslaust þar á tveim bæjum, en viðgerð stendur yfir.
Rafmagnstruflanir urðu í Ísafjarðardjúpi og er keyrt varaafl á hluta djúpsins frá Reykjanesi


