Orkubú Vestfjarða
Orkubú Vestfjarða HF er stofnað á grundvelli laga er samþykkt voru af Alþingi 2001. Orkubú Vestfjarða HF tók til starfa 1. júlí 2001 og tók þá við öllum eignum og Orkubú Vestfjarða var fyrsta rafveitan sem fékk öryggisstjórnarkerfi samþykkt af Neytendastofu. Orkubússtjóri tekur hér við viðurkenningunni.skyldum sameignarfélagsins Orkubú Vestfjarða. Í upphafi var eignarhlutdeild óbreytt frá því sem var í sameignarfélaginu, en í aprílmánuði 2002 hafði ríkissjóður keypt allt hlutafé sveitarfélaganna og á nú allt hlutaféð.
Orkubú Vestfjarða var stofnað á grundvelli laga er samþykkt voru af Alþingi 1976, en þá hafði Orkunefnd Vestfjarða verið að störfum í tæpt ár, og skilað tillögum sínum. Orkubú Vestfjarða var sameignarfyrirtæki ríkissjóðs og sveitarfélaganna í Vestfjarðarkjördæmi. Eignarhluti ríkissjóðs var 40% en sveitarfélaganna 60%, og skiptist eignarhlutdeild þeirra innbyrðis í hlutfalli við íbúatölu hverju sinni. Þessi skipting eignarhlutdeildar sveitarfélaganna byggir á þeirri hugsun, að rétt sé að hlutur hvers einstaklings í þessu almenningsfyrirtæki vegi jafn mikið, hvar sem hann er búsettur á Vestfjörðum.
Tilgangur fyrirtækisins samkvæmt fyrirgreindum lögum er að:
1. Virkja vatnsafl og jarðhita á Vestfjörðum þar sem hagkvæmt þykir.
2. Eiga og reka vatnsorkuver og dísilraforkustöðvar til raforkuframleiðslu, ásamt nauðsynlegum mannvirkjun til raforkuflutnings og raforkudreifingar.
3. Eiga og reka jarðvarmavirki og fjarvarmakyndistöðvar ásamt nauðsynlegu dreifikerfi.
4. Annast virkjunarrannsóknir og aðrar undirbúningsrannsóknir eftir því sem ákveðið er hverju sinni.
Samkvæmt þessu nær hlutverk fyrirtækisins til alls orkuiðnaðar á Vestfjörðum, hvort heldur orkugjafinn er vatnsafl, jarðvarmi eða einhver annar. Aðalskrifstofa Orkubús Vestfjarða á Ísafirði.
Orkubú Vestfjarða hóf starfsemi sína 1. janúar 1978, með yfirtöku á rekstri Rafveitu Ísafjarðar, Rafveitu Patrekshrepps og þeim hluta Rafmagnsveitna ríkisins er var í Vestfjarðarkjördæmi. Ári síðar bættust við Rafveita Snæfjalla og Rafveita Reykjafjarðar og Ögurhrepps.
Stjórn Orkubúsins er skipuð 5 mönnum, sem kjörnir eru á aðalfundi fyrirtækisins.
Orkubússtjóri veitir fyrirtækinu forstöðu, er framkvæmdastjóri þess, og hefur á hendi framkvæmd stefnu stjórnar fyrirtækisins.
Starfsemi Orkubúsins er skipt í 3 svið, orkusvið, rafveitusvið og fjármálasvið, og er framkvæmdastjóri yfir hverju sviði.