Lög um stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða
1. gr.
Ríkisstjórninni er heimilt að standa að stofnun
hlutafélags um rekstur Orkubús Vestfjarða, og að leggja til
hlutafélagsins hlut ríkisins í sameignarfélaginu Orkubú Vestfjarða.
Iðnaðarráðherra annast undirbúning að stofnun hlutafélagsins í
samráði við fjármálaráðherra og sameigendur ríkisins í Orkubúi
Vestfjarða.
2. gr.
Tilgangur Orkubús Vestfjarða hf. er að virkja vatnsafl og
jarðhita á Vestfjörðum, eiga og reka orkuver og raforkustöðvar til
raforkuframleiðslu, ásamt nauðsynlegum mannvirkjum til raforkuflutnings
og raforkudreifingar, jarðvarmavirki og fjarvarmakyndistöðvar ásamt
nauðsynlegu dreifikerfi.
Hlutafélagið stundar virkjunarrannsóknir og aðrar undirbúningsrannsóknir eftir því sem ákveðið er hverju sinni.
Félaginu er einnig heimilt að standa að stofnun og gerast eignaraðili að öðrum félögum og fyrirtækjum.
Tilgangi og verkefnum félagsins skal nánar lýst í samþykktum þess.
Samþykktum félagsins má breyta á hluthafafundi samkvæmt almennum
reglum.
3. gr.
Heimili og varnarþing Orkubús Vestfjarða hf. skulu vera á Ísafirði.
4. gr.
Ákvæði 2. mgr. 14. gr., 1. mgr. 20. gr. og 2. tölul. 1. mgr. 107.
gr. laga nr. 2/1995, um hlutafélög, gilda ekki um innborgun hlutafjár
og fjölda hluthafa í Orkubúi Vestfjarða hf. Ákvæði 6. og 7. gr. laga
nr. 2/1995 eiga ekki við um greiðslu hlutafjár.
5. gr.
Heildarfjárhæð hluta í Orkubúi Vestfjarða hf. skal nema 75% af
bókfærðu eigin fé Orkubús Vestfjarða samkvæmt endurskoðuðum
efnahagsreikningi 31. desember 2000.
Sameignarfélagar í Orkubúi Vestfjarða skulu eignast hluti í hinu
nýja hlutafélagi í samræmi við hlutdeild sína í sameignarfélaginu
Orkubú Vestfjarða svo sem hún var 1. desember 2000.
6. gr.
Orkubú Vestfjarða hf. heldur einkarétti þeim sem iðnaðarráðherra
veitti sameignarfélaginu Orkubú Vestfjarða á grundvelli 6. gr. laga nr.
66/1976, um Orkubú Vestfjarða, sbr. þó 2. og 3. mgr. þessarar greinar.
Iðnaðarráðherra er heimilt, að fengnu áliti stjórnar Orkubús
Vestfjarða hf., að ákveða að rekstur einstakra orkumannvirkja skuli
vera undanþeginn einkarétti félagsins, svo sem bygging og rekstur
mannvirkja til raforkudreifingar, jarðvarmaveitna og fjarvarmaveitna
með kyndistöðvum innan þeirra sveitarfélaga sem þess óska.
Þeir aðrir sem reka orkumannvirki á starfssvæði Orkubús Vestfjarða
hf. við gildistöku laga þessara skulu halda þeim rétti sínum.
7. gr.
Stjórn Orkubús Vestfjarða hf. skal skipuð fimm aðalmönnum og fimm til vara. Þeir skulu kosnir á aðalfundi ár hvert.
Fjármálaráðherra og iðnaðarráðherra fara saman með eignarhlut ríkisins í Orkubúi Vestfjarða hf.
8. gr.
Stjórn hlutafélagsins setur gjaldskrá um verð á seldri orku til
notenda þar sem m.a. skal gætt almennra arðsemissjónarmiða við setningu
gjaldskrár.
Gjaldskrá öðlast eigi gildi fyrr en hún hefur verið staðfest af iðnaðarráðherra og birt í Stjórnartíðindum.
9. gr.
Fastráðnir starfsmenn Orkubús Vestfjarða skulu eiga rétt
á störfum hjá hinu nýja félagi og skulu þeim boðnar stöður hjá því,
sambærilegar þeim er þeir áður gegndu hjá sameignarfélaginu, enda haldi
þeir hjá félaginu réttindum sem þeir höfðu þegar áunnið sér.
Um biðlaunarétt sem kann að hafa fylgt störfum hjá Orkubúi
Vestfjarða gilda ákvæði laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins.
10. gr.
Stofna skal hlutafélagið Orkubú Vestfjarða á stofnfundi sem haldinn skal eigi síðar en 1. júní 2001.
Allur kostnaður Orkubús Vestfjarða hf. af stofnun hlutafélagsins
og yfirtöku þess á rekstri Orkubús Vestfjarða greiðist af félaginu.
11. gr.
Orkubú Vestfjarða hf. skal taka til starfa eigi síðar en 1. júlí
2001 og yfirtaka allar eignir, réttindi, skuldir og skuldbindingar
sameignarfélagsins Orkubú Vestfjarða. Sameignarfélagið Orkubú
Vestfjarða skal lagt niður frá og með þeim degi og fellur þá jafnframt
niður umboð stjórnar sameignarfélagsins.
12. gr.
Orkubú Vestfjarða hf. er undanþegið tekjuskatti, útsvari, stimpilgjaldi og öðrum sköttum til ríkis og sveitarfélaga.
13. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Lög nr. 66/1976, um Orkubú
Vestfjarða, falla úr gildi þegar Orkubú Vestfjarða hf. tekur til
starfa, sbr. ákvæði 11. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
Sameignarfélagar Orkubús Vestfjarða bera áfram, gagnvart
kröfuhöfum, einfalda óskipta ábyrgð á skuldbindingum Orkubús Vestfjarða
sem stofnast hafa áður en hlutafélag er stofnað um rekstur þess.
Innbyrðis skiptist þessi ábyrgð samkvæmt eignarhlutföllum l. desember
2000.
II.
Á stofnfundi skal kjósa stjórn félagsins og skal hún starfa þar
til ný stjórn hefur verið kosin á fyrsta aðalfundi eftir að félagið
hefur tekið til starfa. Hlutverk stjórnar fram að yfirtöku er að
undirbúa yfirtöku á rekstri Orkubús Vestfjarða en eftir það að stjórna
félaginu í samræmi við ákvæði laga.
III.
Rekstrarlega séð skal yfirtaka Orkubús Vestfjarða hf. á sameignarfélaginu Orkubú Vestfjarða miðuð við 1. janúar 2001.
Samþykkt á Alþingi 20. maí 2001.


