Blævardalsárvirkjun
Blævardalsárvirkjun er næstminnsta vatnsvél Orkubús Vestfjarða sem
nú er í rekstri. Virkjunin er hlekkur í rafmagnsframleiðslu í
Ísafjarðardjúpi og tengd raforkulínum þar.
Blævadalsárvirkjun var endurbyggð árin 2004 og 2005 í kjölfar
bilunar í höfuðloka í byrjun árs 2004, en þá eyðilagðist mikið m.a.
rafallinn.
Ný 235 kW vél var sett ásamt stjórnbúnaði fjá Volk Wasserkraft í
Þýskalandi. Þetta er sami framleiðandi og í Reiðhjallavirkjun. Vélin er
útbúin fyrir samkeyrslu fyrir einangrað net (tíðnistýringu) og
vatnshæðarstýringu. Stöðin er fjarstýranleg frá Hólmavík.


