Útboð á nýrri 1,2 MW vatnsaflsvél

07. september 2012

Orkubú Vestfjarða hefur auglýst eftir tilboðum í vél- og rafbúnað fyrir Fossárvirkjun. 

Fyrirhugað er að byggja nýtt stöðvarhús neðan núverandi stöðvarhúss í Engidal inn af Skutulsfirði  þar sem nýjum búnaði verður komið fyrir sem leysir þann gamla af hólmi.   Vinnuheitið á þessari nýju virkjun er Fossárvirkjun til aðgreiningar á gömlu vélinni sem heitir Fossavatnsvél og er staðsett í sameiginlegu stöðvarhúsi með Nónvél ásamt gömlum díselvélum.  Það hús heitir Rafstöðin á Fossum.  

Helstu kennitölur og lýsing á  búnaði er eftirfarandi:

Vatnshverfill af Peltongerð, láréttum ás, 1.000 sn/mín, tveggja stúta.
Fallhæð 308 metrar og vatnsnotkun við fullt álag 0,45 m3/s.
Pípubortsloki og höfuðloki DN 500 og 350 mm.
Afl og spenna rafala 1400 kVA og 400 V.
Tregðuvægi samstæðu 2.800 kgm2.
Stjórnbúnaður m.a. útbúinn fyrir eyjakeyrslu, ræsa og spennusetja á straumlaust net ásamt jafn miklum möguleikum á yfir- og undirsegulmögnun.
Afhending á búnaði fyrir 1. September 2013. 

Útboðsgögn merkt „Fossárvirkjun Powerstation refurbisment, Turbine-generator unit" verða seld á skrifstofu Orkubúsins,  Stakkanesi 1, 400 Ísafirði gegn kr. 15.000,- óafturkræfu gjaldi.  Hægt að panta gögnin á netfangi  orkubu@ov.is  eða  gg@ov.is .  Tilboðum skal skilað á sama stað fyrir kl. 14.00,  föstudaginn 28. September  2012, þar sem þau verða opnuð og lesin upp.   Orkubú Vestfjarða áskilur sig rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.


Orkusvið

Sölvi R Sólbergsson

02. apríl 2025

Kvíslatunguvirkjun í Steingrímsfirði – sótt um virkjunarleyfi

Á fundi stjórnar Orkubús Vestfjarða þ. 26 mars var tekin formleg ákvörðun um að sótt verði...

18. mars 2025

Starf svæðisstjóra á Hólmavík

Orkubú Vestfjarða leitar að starfsmanni til að stýra öflugum vinnuflokki sem er með höfuðstöðvar...

17. febrúar 2025

Sumarstörf í boði 2025

Sumarstörf í boði 2025