Kvíslatunguvirkjun - Útboðs auglýsing

02. október 2026

Efni: Auglýsing um væntanlegt útboð fyrir mannvirki virkjunar

Kvíslatunguvirkjun – Útboð Mannvirkjagerðar

Orkubúið stefnir á að bjóða út mannvirkjahluta Kvíslatunguvirkjunar, reiknað er með að útboðsgögn verði tilbúin fyrir miðjan október en vegna veðurfarsástæðna er valin sú leið að boða til skoðunarferðar fyrr. Verktími mun dreifast á árin 2027 til 2029

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Um er að ræða vatnsaflsvirkjun 9,9 MW að stærð staðsett í Selárdal í Steingrímsfirði, u.þ.b. 20 km frá Hólmavík. Aðkoma að vinnusvæðinu er frá Djúpvegi (61) um Strandaveg (643) að Geirmundarstaðavegi (6433) og loks eftir nýgerðum aðkomuvegi að væntanlegu stöðvarhúsi, Kvíslatunguvegur. Rétt fyrir sunnan væntanlegt stöðvarhús liggur 5 km nýr vegur upp Leitishlíðina að staðsetningu fyrirhugaðs inntakshúss, vegurinn er ekki fullbúinn.

Helstu magntölur

Gröftur                                                                  370.000m3

Stíflufyllingar                                                         380.000m3

Járnbending                                                          140.000kg

Steinsteypa                                                           1.550m3

Forsteyptar einingar                                               340m2

Niðurlögn þrýstipípu, ø1000 - 1400mm                    3.000m

Efnisnámur

Efnisnámur – Verkkaupi bendir á að ekki er talið vera heppilegt efni í steypugerð á svæðinu og þarf verktaki að útvega efni í steypugerð.

Leyfismál

Vakin er athygli á að því virkjunarleyfi sé útgefið en ekki er búið að veita framkvæmdaleyfi og tengist það breytingum á bæði aðal og deiliskipulagi eftir jarðvegs rannsóknir sumarsins. Reiknað er með að framkvæmdaleyfi verði veitt á fyrsta ársfjórðungi 2027.

Skoðunarferð

Orkubú Vestfjarða býður upp á skoðunarferð á verkstað ef veður leyfir 2026-10-08 eða 09 kl. 12:00.

Athugið að það þarf vel útbúinn breyttan jeppa á 35“ dekkjum eða sexhjól til að komast um virkjunarsvæðið.

Þeir bjóðendur er hafa áhuga á að kynna sér aðstæður á verkstað skulu tilkynna mætingu í skoðunarferð á tölvupóstfangið jbh@verkis.is. fyrir 2026-10-07.

 

Hægt er að sjá yfirlitskort af verksvæði á útboðsvef Orkubú Vestfjarða

Viðhengi

14. september 2026

20 ára bið – eða ný nálgun?

Nú liggja fyrir í samráðsgátt stjórnvalda „Drög að þingsályktun um stefnu stjórnvalda...

09. september 2026

Íbúafundur, Patreksfirði

Íbúafundur um stöðu veituframkvæmda og jarðhitaleitar

11. ágúst 2026

Hleðslustöðvar á Vestfjörðum.

Nú styttist í sólmyrkvann og búast má við mikilli umferð um Vestfirði í dag og næstu daga.