Orkubú Vestfjarða hlýtur viðurkenningu á innra eftirlitskerfi með varmaorkumælum

30. október 2013

Orkubú Vestfjarða hefur hlotið viðurkenningu Neytendastofu á innra eftirlitskerfi með varmaorkumælum og er fyrsta dreifiveitan sem hlýtur slíka viðurkenningu. Ragnar Emilsson deildarstjóri eftirlitsdeildar tók við viðurkenningunni fyrir hönd Orkubúsins.

Af þessu tilefni kom fulltrúi Neytendastofu, Bjarni Bentsson, í heimsókn og afhenti Orkubúinu viðurkenninguna. Viðurkenningin er veitt samkvæmt reglugerð Nr. 561/2012 um mælifræðilegt eftirlit með varmaorkumælum.

Innra eftirlitið fer þannig fram að varmaorkumælum  er skipað í söfn eftir árgerð og gerðarauðkenni og í framhaldi er tekið úrtak af mælum og þeir prófaðir af viðurkenndri prófunarstofu. Standist mælar ekki úrtaksprófun þá er skipt um alla mæla í viðkomandi mælasafni.

Vert er að benda á gæðastefnu Orkubús Vestfjarða sem er að:

  • Vera ábyrgt fyrirtæki sem nýtur trausts viðskiptavina sinna og veitir þeim þjónustu af bestu mögulegu gæðum og með fullnægjandi afhendingaröryggi.
  • Vera meðvitað um áhrif starfssemi fyrirtækisins á umhverfið og draga úr óæskilegum umhverfisáhrifum svo sem kostur er. Vera fyrirmyndar vinnustaður þar sem aðbúnaður, hollusta og öryggi starfsmanna er sett í öndvegi.
  • Vera fyrirtæki sem uppfyllir ávalt opinberar kröfur sem gerðar eru til starfseminnar.
  • Vera fyrirtæki sem fer að kröfum ISO 9001 staðalsins og vinnur að stöðugum umbótum.

201310-1-1.jpg

10. apríl 2026

Samið um lagningu jarðstrengja til Súðavíkur

Fimmtudaginn 9.apríl var undirritaður verksamningur, milli Orkubús Vestfjarða...

09. mars 2026

Samfélagsstyrkir Orkubús Vestfjarða 2026

Orkubú Vestfjarða auglýsir eftir umsóknum um samfélagsstyrki 2026

03. mars 2026

Sumarstörf í boði 2026

Auglýst er eftir flokkstjóra til að hafa umsjón með sumarvinnuflokki sem hefur starfsstöð...