Sýnum aðgæslu til fjalla!

17. mars 2015

Vegna mikilla snjóalaga víða á hálendi Vestfjarða, vill Orkubú Vestfjarða og Landsnet benda á eftirfarandi:

Mikill snjór er víða til fjalla og því ættu allir þeir sem ferðast utan alfaraleiða að sýna sérstaka aðgát. 

Háspennulínur eru ekki alltaf sýnilegar vegna snjóa og slæms skyggnis.  Í miklu fannfergi minnkar bilið frá jörðu að línu og einnig er hætta á að ísing á línum leiði til þess að línurnar sigi mikið. Við allra verstu aðstæður liggja leiðarar alveg niður í snjó. 

Við þessar aðstæður, þegar bilið milli yfirborðs og línu er orðið þetta lítið, skapast hættuástand og lífsnauðsynlegt að gæta ýtrustu varúðar.

Því er skíða-, vélsleða-, jeppafólk og aðrir, sem eru á ferð um fjalllendi, beðnir um að gæta sérstakrar varúðar.

Góð regla er að athuga áður en lagt er af stað, hvort og þá hvar háspennulínur liggja um það svæði sem ferðast skal um.

Ef einhver verður var við að háspennulína sé of nálægt yfirborði eða eitthvað annað sé athugavert við línuna, þá verður að tilkynna það strax til Orkubús Vestfjarða eða Landsnets.

30. janúar 2026

OV: flytur sig um set á Patreksfirði

Orkubú Vestfjarða og Vélsmiðjan Logi á Pateksfirði hafa samið um skipti á fasteignum.

08. janúar 2026

Gjaldskrá Orkubús Vestfjarða 1. janúar 2026

Gjaldskrár Orkubús Vestfjarða fyrir dreifingu á rafmagni og hitaveitu hækka frá og með 1. janúar...

16. október 2025

Lokað fyrir umferð á Skógarbraut vegna vinnu við hitaveitulögn

Lokað verður fyrir umferð um Skógarbraut á Ísafirði í dag og á morgun, 16. og 17. október.