Styrkir Orkubús Vestfjarða til samfélagsverkefna 2015

25. nóvember 2015

Stjórn Orkubús Vestfjarða hefur enn á ný ákveðið að veita styrki til samfélagsverkefna á Vestfjörðum. Að þessu sinni eru til ráðstöfunar 3.000.000.- krónur.

Umsóknir um styrkina þurfa að berast Orkubúi Vestfjarða fyrir 12. desember n.k. og er stefnt að því að þeim verði úthlutað í byrjun janúar 2016.

Umsókn um styrk má senda í pósti til Orkubús Vestfjarða, Stakkanesi 1, 400 Ísafirði, merkt „Styrkur" eða með tölvupósti til orkubússtjóra á netfangið kh@ov.is.

02. október 2026

Kvíslatunguvirkjun - Útboðs auglýsing

Orkubúið stefnir á að bjóða út mannvirkjahluta Kvíslatunguvirkjunar, reiknað er með að útboðsgögn...

14. september 2026

20 ára bið – eða ný nálgun?

Nú liggja fyrir í samráðsgátt stjórnvalda „Drög að þingsályktun um stefnu stjórnvalda...

09. september 2026

Íbúafundur, Patreksfirði

Íbúafundur um stöðu veituframkvæmda og jarðhitaleitar