Útboð - Óskað eftir tilboðum í viðhald verkstæðis

17. mars 2022

Útboð

Orkubú Vestfjarða ohf óskar eftir tilboðum í viðhald utanhúss á verkstæðis og rafstöðvarhúsi Patreksfirði.

Útboðið felur í sér viðhald utanhúss á verkstæðis og rafstöðvarhúsi á Patreksfirði við Eyrargötu en um er að ræða viðhald tveggja sambyggðra húsa,annarsvegar 316 fermetra rafstöðvarhús byggt 1953 og hinsvegar 430 fermetra skrifstofu- og verkstæðishús byggt árið 1988. Húsin eru bæði byggð úr steinsteypu, pokapússuð og máluð að utan. Þökin eru úr timbri og klædd með bárujárni, rafstöðvarhúsið, og skrifstofu- og verkstæðishúsið með trapisujárni. Gluggar og gönguhurðir eru úr timbri, aðrar stærri hurðir eru úr stáli. Gert er ráð fyrir að verkið verði unnið sumarið 2022.

Helstu magntölur:

Rif á bárujárni: 290m2
Rif á trapisustáli: 320m2
Rif og förgun á kjöljárni: 100m
Fjarlægja og farga þakpappa: 610m2
Einangrun í þak á rafstöðvarhúsi 200mm: 250m
Málun á steyptum flötum: 410m2
Sprunguviðgerðir: 300m
Háþrýstiþvottur: 430m2
Bárujárn, 0,63mm aluzink: 610m2
Álklæðning lituð,slétt þykkt 2,0mm: 86m2

Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með 17.mars næstkomandi. Hægt er að panta gögnin á netfangi: utbod@ov.is Einnig er hægt að skila tilboðum inn rafrænt á ofangreint netfang eða í lokuðu umslagi til innkaupastjóra Orkubús Vestfjarða Stakkanesi 1 Ísafirði fyrir klukkan 11:00, fimmtudaginn 31.mars 2022 og verða þau þá opnuð í fundarherbergi OV að viðstöddum þeim bjóðendum sem mættir eru og fulltrúum Orkubús Vestfjarða.

09. mars 2026

Samfélagsstyrkir Orkubús Vestfjarða 2026

Orkubú Vestfjarða auglýsir eftir umsóknum um samfélagsstyrki 2026

03. mars 2026

Sumarstörf í boði 2026

Auglýst er eftir flokkstjóra til að hafa umsjón með sumarvinnuflokki sem hefur starfsstöð...

30. janúar 2026

OV: flytur sig um set á Patreksfirði

Orkubú Vestfjarða og Vélsmiðjan Logi á Pateksfirði hafa samið um skipti á fasteignum.