Kvíslatunguvirkjun í Steingrímsfirði – sótt um virkjunarleyfi

02. apríl 2025

Á fundi stjórnar Orkubús Vestfjarða þ. 26 mars var tekin formleg ákvörðun um að sótt verði um virkjunarleyfi fyrir Kvíslatunguvirkjun í Steingrímsfirði svo hægt sé að ráðast í virkjunina.  Virkjunin hefur þegar farið í gegnum umhverfismat, en beðið er eftir endanlegri staðfestingu aðalskipulags Strandabyggðar.

Virkjunin fellur vel að þeim markmiðum stjórnar Orkubús Vestfjarða að tryggja næga orkuöflun félagsins innan Vestfjarða, auka afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum og gera félaginu kleift að taka þátt í grænum orkuskiptum á Vestfjörðum í samræmi við stefnu stjórnvalda.

Kvíslatunguvirkjun hefur alla burði til að verða arðbært verkefni fyrir Orkubúið. Virkjunin mun auk þess hafa afgerandi áhrif á afhendingaröryggi rafmagns á Ströndum, á Reykhólum og í Inndjúpi, en reiknað er með að það aukist um allt að 90%. Virkjunin mun því draga mikið úr kostnaði við framleiðslu orku með díselvélum og minnka um leið losun gróðurhúsalofttegunda vegna keyrslu varaafls á því svæði.

Um er að ræða stærsta einstaka verkefni sem Orkubú Vestfjarða hefur ráðist í frá upphafi.  Áformað afl virkjunarinnar er 9,5 MW í byrjun og má gera ráð fyrir að hún framleiði um 60 GWst að meðaltali á ári, en mögulegt er að bæta við lítilli 0,4MW virkjun í þrepi á milli uppistöðulóna virkjunarinnar.  Virkjunin fylgir fast á hæla Mjólkárvirkjunar að stærð, en hún er stærsta virkjun Orkubúsins og samanstendur í rauninni af þremur virkjunum, Mjólká I, Mjólká II og Mjólká III, sem samtals eru 11,2 MW.

Áætlaður kostnaður við byggingu virkjunarinnar er ríflega 7 milljarðar króna.  Stefnt er að því að  hefja undirbúningsframkvæmdir í sumar, en aðal framkvæmdirnar verði á árinu 2026 og 2027.  Áætlanir gera ráð fyrir að virkjunin verði farin að framleiða raforku í árslok 2027.

 

 Mynd-1.jpg

Á meðfylgjandi mynd sem tekin var af þessu tilefni eru, Sölvi R. Sólbergsson, framkvæmdastjóri orkusviðs, Gísli Jón Kristjánsson og Valgerður Árnadóttir, stjórnarmenn, Illugi Gunnarsson, stjórnarformaður, Unnar Hermannsson og Viktoría Rán Ólafsdóttir, stjórnarmenn, Daníel Örn Antonsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs og Elías Jónatansson, orkubússtjóri.

 

 

 

04. september 2025

Viðvörun – Fölsuð QR kóðamerking á hleðslustöðvum !

Við viljum vara við því að óprúttnir aðilar hafa komið fyrir fölsuðum QR kóðum á nokkrum...

29. ágúst 2025

Afkastamælingar borholu á Patreksfirði lofa góðu

Óhætt er að segja að niðurstöður jarðhitaleitar á Patreksfirði hafi farið fram úr væntingum.

22. ágúst 2025

Jákvætt skref í jarðhitaleit á Patreksfirði

Undanfarnar vikur hefur Orkubú Vestfjarða staðið fyrir borun á þremur rannsóknarholum og nýrri...