Orkubú Vestfjarða auglýsir eftir umsóknum um samfélagsstyrki 2026
Samfélagsstyrkir Orkubús Vestfjarða eru veittir árlega sem stuðningur við einstaklinga og félög sem vinna að áhugaverðum og samfélagslega mikilvægum verkefnum á Vestfjörðum. Við val á styrkþegum er leitast við að styrkja verkefni vítt og breitt um Vestfirði. Verkefnin geta tengst starfsemi ýmissa félaga á Vestfjörðum, æskulýðsstarfi, menningarstarfsemi, listum eða öðrum áhugaverðum verkefnum til eflingar fyrir vestfirskt samfélag.
Miðað er við að einstakar styrkveitingar geti verið á bilinu 50 til 300 þúsund
Umsóknum skal skilað rafrænt með því að fylla út þetta rafræna eyðublað.
Umsóknarfrestur er til og með 22. mars 2026.