Samið um lagningu jarðstrengja til Súðavíkur

10. apríl 2026

Fimmtudaginn 9.apríl var undirritaður verksamningur, milli Orkubús Vestfjarða og verktakafyrirtækisins Þjótanda, um lagningu jarðstrengja og ljósleiðara frá aðveitustöð á Skeiði á Ísafirði að nýrri aðveitustöð á Langeyri innan við Súðavík.

Um er að ræða annars vegar 33 kV jarðstreng sem verður burðarstrengur í orkuflutningi, m.a. fyrir nýja Kalkþörungaverksmiðju í Súðavík, ásamt 11 kV jarðstreng sem líta má á sem varaflutningsleið fyrir almenna notkun.  Almennir notendur í Súðavík verða þannig hringtengdir við aðveitustöð á Ísafirði.  Auk jarðstrengjanna verða lagðir ljósleiðarar  í sama skurð.

Verkinu skal vera lokið eigi síðar en 1. desember í ár, en yfirborðsfrágangur fer fram sumarið 2027.

Heildar fjárhæð samningsins er um 700 milljónir króna.  Verkfræðistofan Efla á Ísafirði annast eftirlit með verkinu.

Tenging til Súðavíkur með tveimur jarðstrengjum mun gjörbylta orkuöryggi í Álftafirði ásamt því að tryggja nýrri kalkþörungaverksmiðju nægt afl til sinnar starfsemi. 

Verkáætlun miðar að því að hægt verði að spennusetja 11 kV strenginn strax á þessu ári sem þýðir að notendur í Súðavík verða ekki lengur háðir afhendingu raforku um Súðavíkurlínu, loftlínu sem liggur frá Engidal í Skutulsfirði yfir Rauðkoll í 900 m hæð til Súðavíkur, en línan hefur verið í rekstri í 70 ár.  Línan verður aflögð í kjölfar spennusetningar jarðstrengjanna.

Reikna má með að verktaki hefji undirbúning verksins fljótlega með aðstöðusköpun og flutningi tækja á staðinn.

 Við aðveitustöð á Ísafirði.jpg

Á myndinni sem tekin er við aðveitustöð á Ísafirði eru, frá Orkubúi Vestfjarða, Benedikt Ólafsson rafmagnstæknifræðingur, Halldór V Magnússon framkvæmdastjóri veitusviðs og  Elías Jónatansson orkubússtjóri. Frá Þjótanda eru þeir Ólafur Einarsson framkvæmdastjóri og Valdimar Guðmundsson.

28. maí 2026

Á vaktinni fyrir Vestfirði !

Orkubú Vestfjarða efnir til funda á Vestfjörðum í næstu viku.  Þar verður farið yfir það sem er...

28. maí 2026

Skýrsla - Samanburðargreining á virkjunarkostum OV

Skýrsla KPMG - Samanburðargreining á virkjunarkostum OV

26. maí 2026

Orkubú Vestfjarða auglýsir útboð lagningu hitaveitulagna og jarðstrengja á Patreksfirði

Okkur langar að vekja athygli ykkar á því að nú hefur nýtt útboð nr. 2026-05 – Endurnýjun...