Ársreikningur Orkubús Vestfjarða fyrir árið 2025 var samþykktur á aðalfundi félagsins 16. apríl, en opnir kynningarfundir með stjórn og stjórnendum Orkubúsins, eru áformaðir eftir miðjan maí á Hólmavík, Ísafirði og Patreksfirði.
Stjórn Orkubús Vestfjarða var endurkjörin á aðalfundinum, en í henni sitja:
Unnur Valborg Hilmarsdóttir, formaður
Ástvaldur Jóhannsson,
Sigríður Kristjánsdóttir,
Viktoría Rán Ólafsdóttir
Þröstur V. Söring
Rekstrarniðurstaða
Rekstrartekjur félagsins námu 4.410 m.kr. í samanburði við 4.297 m.kr. árið á undan, en EBIDTA nam 485 m.kr. sem er viðunandi ef tekið er tillit til óvæntra liða eins og aukningar í lífeyrisskuldbindingu og óvæntra bilana í rafkyntum hitaveitum.
Eignir félagsins námu 15,1 milljarði króna um áramót og skuldir 4,1 milljarði og eiginfjárhlutfallið því 72,7% í árslok 2025.
Fjárhagur Orkubús Vestfjarða er sterkur og byggir á traustum grunni. Félagið er því í góðri stöðu til að takast á við miklar fjárfestingar næstu ára.
Framkvæmt fyrir 4.500 m.kr. árið 2026
Árið 2025 var ár mikilla fjárfestinga, en heildarfjárfestingar námu 1.446 m.kr. Þar var um að ræða fjárfestingar í aukinni orkuöflun á Vestfjörðum bæði í jarðhita og raforku auk þess sem unnið var að nýtingu jarðhita með varmadælulausn. Þá var unnið áfram að styrkingu dreifikerfis raforku í dreifbýli og náðist m.a. stór áfangi þegar lokið var við jarðstrengjavæðingu í Árneshreppi.
Framkvæmdaáætlun ársins 2026 er metnaðarfull og er gert ráð fyrir fjárfestingum að fjárhæð 4.500 m.kr. á árinu. Stærstu fjárfestingarnar í ár eru jarðstrengir til Súðavíkur og tilheyrandi aðveitustöðvar og búnaður fyrir um 1,5 milljarða króna en aðrar fjárfestingar á veitusviði, m.a. í frekari styrkingu dreifikerfisins, nema um 474 m.kr. Þá er reiknað með 1,2 milljarða króna fjárfestingu í hitaveitum og jarðhita- og varmadælulausnum á Patreksfirði og á Ísafirði. Fjárfest verður fyrir ríflega 900 m.kr. í Kvíslatunguvirkjun.
Fjárfestingar félagsins, sem dreifast um alla Vestfirði, munu leggja grunninn að auknu orkuöryggi, hagkvæmari rekstri og sjálfbærni félagsins til framtíðar, sem eru í samræmi við það markmið stjórnar að styrkja innviði og leggja traustan grunn að öflugri framtíð samfélaganna á Vestfjörðum.

Á myndinni eru:
Þröstur V. Söring
Sigríður Kristjánsdóttir
Ástvaldur Jóhannsson
Elías Jónatansson, orkubússtjóri
Unnur Valborg Hilmarsdóttir, formaður stjórnar
Viktoría Rán Ólafsdóttir