Á vaktinni fyrir Vestfirði !

28. maí 2026

Orkubú Vestfjarða efnir til funda á Vestfjörðum í næstu viku.  Þar verður farið yfir það sem er á döfinni hjá fyrirtækinu – helstu framkvæmdir ársins auk upplýsinga um starfsemina á síðasta ári.

Árið 2026 er eitt stærsta framkvæmdaár í sögu Orkubúsins og er reiknað með að framkvæmt verði fyrir 4,5 milljarða króna í dreifikerfi raforku, jarðhitaleit, varmadæluvæðingu hitaveitna á Ísafirði og á Patreksfirði ásamt fjárfestingu í Kvíslatunguvirkjun í Strandabyggð.

Þá verður á fundunum kynnt skýrsla KPMG þar sem gerð er samanburðargreining á tveimur virkjunarkostum Orkubúsins á Glámuhálendinu – Tröllárvirkjun og Vatnsdalsvirkjun.
Í skýrslunni er lagt mat á virkjunarkostina út frá þremur megin sjónarhornum:

  • Fjárhagslegum hagsmunum Orkubús Vestfjarða
  • Samfélagslegum hagsmunum Vestfjarða
  • Þjóðhagslegum hagsmunum

Skýrsla KPMG sýnir með skýrum hætti þá samfélagslegu hagsmuni sem eru af byggingu virkjunar í Vatnsdal umfram Tröllárvirkjun.

Hlekkur á skýrslu

Að framsögunum loknum verður opnað á fyrirspurnir og umræður.

Fundirnir sem eru opnir öllum verða á:

  • Patreksfirði júní kl. 12:00       Verbúðinni Eyrargötu
  • Hólmavík júní kl. 12:00          Café Riis
  • Ísafirði júní kl. 10:00             Edinborg – Rögnvaldarsalur

vaktinni.png

11. ágúst 2026

Hleðslustöðvar á Vestfjörðum.

Nú styttist í sólmyrkvann og búast má við mikilli umferð um Vestfirði í dag og næstu daga.

07. ágúst 2026

Kvíslatunguvirkjun í Strandabyggð – virkjunarleyfið í höfn

Umhverfis- og orkustofnun veitti Orkubúi Vestfjarða þ. 1. júlí sl., virkjunarleyfi fyrir 9,9...

28. maí 2026

Skýrsla - Samanburðargreining á virkjunarkostum OV

Skýrsla KPMG - Samanburðargreining á virkjunarkostum OV