Kvíslatunguvirkjun í Strandabyggð – virkjunarleyfið í höfn

07. ágúst 2026

Umhverfis- og orkustofnun veitti Orkubúi Vestfjarða þ. 1. júlí sl., virkjunarleyfi fyrir 9,9 MW Kvíslatunguvirkjun í Selárdal í Strandabyggð.  Einnig veitti stofnunin heimild til breytinga á vatnshlotum Svartagilsvatns, Efri-Kotvatna og Þjóðbrókargils.

Um er að ræða stóran áfanga í eflingu raforkukerfisins á Vestfjörðum ekki síst út frá afhendingaröryggi raforku í Strandabyggði og á Ströndum, en með virkjuninni er tryggð afhending á raforku úr tveimur áttum fyrir Hólmavík og nágrenni.  Virkjunin er þannig skólabókardæmi um hvernig tryggja má afhendingaröryggi raforku, annars vegar með tengingu við flutningskerfið og hins vegar með byggingu virkjana í grennd við notendur.  Afl virkjunarinnar nægir til að anna tvöföldu því hámarksálagi sem er á svæðinu í dag og getur annað raforkuþörf í Strandabyggð og Ísafjarðardjúpi jafnvel svo vikum skiptir ef upp kæmi alvarleg bilun í flutningskerfi raforku, enda tryggja uppistöðulón hennar góða miðlunargetu á vatni.

Virkjunin hefur mikinn meðbyr meðal heimamanna og annarra sem hafa kynnt sér verkefnið og mikilvægi þess fyrir samfélagið á Ströndum.

Verkefnið hefur hlotið mikinn og góðan undirbúning sem hófst með undirritun samkomulags um rannsóknir og mögulega uppbyggingu 9,9 MW virkjunar, á milli landeigenda Gilsstaða í Steingrímsfirði og Orkubús Vestfjarða í mars 2023.  Umhverfismati vegna virkjunarinnar lauk í desember 2024, en sótt var um virkjunarleyfi í júlí 2025. 

Virkjunarleyfið var gefið út 1. júlí  sl.  og er kærufrestur vegna þess nú runninn út án þess að athugasemdir hafi borist.

Undirbúningsframkvæmdir vegna virkjunarinnar eru þegar hafnar, auk þess sem unnið hefur verið markvisst að hönnun hennar.  Stefnt er að því að aðalútboð vegna virkjunarframkvæmdanna sjálfra fari fram í næsta mánuði, en nú er unnið að undirbúningi umsóknar um framkvæmdaleyfi fyrir virkjunina, sem komin er inn á aðalskipulag sveitarfélagsins, Strandabyggðar.

Virkjunin mun auka árlega framleiðslugetu Orkubúsins í raforku um 67% og er því mikilvægt skref í þeirri stefnu Orkubúsins að vera sjálfbært með framleiðslu þeirrar raforku sem það selur.

Áætlanir gera ráð fyrir að hægt verði að ræsa virkjunina í September 2028, eða eftir tvö ár, en frágangur á virkjunarsvæðinu teygist fram á árið 2029.

Unnið að rannsóknum.jpg

Ljósmynd: Unnið að rannsóknum

28. maí 2026

Skýrsla - Samanburðargreining á virkjunarkostum OV

Skýrsla KPMG - Samanburðargreining á virkjunarkostum OV

28. maí 2026

Á vaktinni fyrir Vestfirði !

Orkubú Vestfjarða efnir til funda á Vestfjörðum í næstu viku.  Þar verður farið yfir það sem er...

26. maí 2026

Orkubú Vestfjarða auglýsir útboð lagningu hitaveitulagna og jarðstrengja á Patreksfirði

Okkur langar að vekja athygli ykkar á því að nú hefur nýtt útboð nr. 2026-05 – Endurnýjun...