Hleðslustöðvar á Vestfjörðum.

11. ágúst 2026
Nú styttist í sólmyrkvann og búast má við mikilli umferð um Vestfirði í dag og næstu daga.  Nýlega hefur hleðslustöðvum Orkubúsins á svæðinu fjölgað:
• Ný 200 kW hraðhleðslustöð á Patreksfirði

• Tvær nýjar 50 kW hraðhleðslustöðvar á Tálknafirði

• Ný 240 kW hraðhleðslustöð á Króksfjarðarnesi

Margir bílar lögreglu og annarra viðbragðsaðila eru rafknúnir. Við hvetjum vegfarendur því til að hafa þarfir viðbragðsaðila í huga við hleðslustöðvar og sýna þeim sérstaka tillitssemi ef aðstæður kalla á.  Við óskum öllum góðrar ferðar og hvetjum fólk til að fara varlega og njóta þessa einstaka náttúruviðburðar á Vestfjörðum.
Hleðslustöðvar.jpg
07. ágúst 2026

Kvíslatunguvirkjun í Strandabyggð – virkjunarleyfið í höfn

Umhverfis- og orkustofnun veitti Orkubúi Vestfjarða þ. 1. júlí sl., virkjunarleyfi fyrir 9,9...

28. maí 2026

Skýrsla - Samanburðargreining á virkjunarkostum OV

Skýrsla KPMG - Samanburðargreining á virkjunarkostum OV

28. maí 2026

Á vaktinni fyrir Vestfirði !

Orkubú Vestfjarða efnir til funda á Vestfjörðum í næstu viku.  Þar verður farið yfir það sem er...